17.10.2011 | 07:39
Ég er að fikra mig
hingað
https://saemundsson.wordpress.com/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2011 | 19:45
94 dagar til jóla
Hugsa sér. Hver einasta helgi fram í nóvember er búin að fá sitt skipulag. En það er engin kvöð. Allt ánægjuleg verkefni og góðar stundir. Manchester um aðra helgi með Teiti og Hafþóri. Það verður upplifun að komast á Old Trafford. Þangað hefur manni alltaf dreymt að koma. Mig dreymir líka um ein "fríjól". Þar sem ég þarf ekki að gera neitt annað en að borða, lesa og sofa. Hlusta á jólalög við arineld í fjallakofa og út um gluggann blastir við snævi þakin jörð í bjarma af tunglsljósi. Allt þetta er auðvelt að láta verða að veruleika nema "fríjólin" eru ekki til í mínu starfi. Verða að bíða með þau um sinn.. og það er fátt hátíðlegra en falleg jólamessa. Þær eru margar minnisstæðar og skilja eftir yl í minningunni.
Eitt aðfangadagskvöld fyrir mörgum árum spilaði ég á Miklabæ. Þá var ég búsettur á Akureyri en keyrði einu sinni í viku á æfingar og svo í messur þegar þær voru. Þetta aðfangadagskvöld keyrði ég frá Akureyri. Hafði sungið við guðsþjónustu kl. 18 í Akureyrarkirkju og um kl. 21 ók ég af stað vestur í Skagafjörð. Með mér var Haukur vinur minn Steinbergsson en hann fékk ég til að syngja tenór með kórnum. Þetta var einstaklega fallegt kvöld. Harðfenni, stjörnubjart og tunglsljós. Messan var kl. 22:30 eða 23. Man það ekki. Þarna hitti ég fólkið mitt í sveitinni og þetta var falleg stund. Hátíðleikinn náði hámarki þegar öll ljós voru slökkt og aðeins birta af kertaljósum ljómaði um kirkjuna í einhverjum sálmi. Öllum til mikillar gleði, nema Hauki. Hann var með nótur því hann var nánast að lesa sálminn af blaði. Þótt hann væri klár, þá átti hann erfitt með að lesa af blaði í myrkri. Og af þessu var mikið hlegið á leiðinni til baka. Eftir messu skruppum við aðeins í Grund í kaffi hjá mömmu og pabba. Lögðum svo af stað norður um kl. 1 um nóttina. Við stoppuðum aðeins á Öxnadalsheiðinni, þar sem Sesseljubúð stóð áður og nutum jólaveðurs eins og það gerist fallegast.
Í fjallasal.
Bloggar | Breytt 22.9.2011 kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2011 | 11:03
George og Gissur
Við förum ekki norður í réttir þetta árið. Þangað hef ég farið öll flest öll haust. Og vissulega var það á plani eins og svo margt annað. En göngum var seinkað um viku og setti allt úr skorðum. Og örugglega ekki bara hjá mér. Mér finnst þetta slæmt og ekki orð um það meir!
Kórstarfið er að fara af stað. Hef fína tilfinningu fyrir vetrinum. Indælis- og gott söngfólk hefur bæst í hópinn og framundan eru skemmtileg verkefni. Sérstaklega er ég spenntur fyrir lagaflokki eftir George Shearing. Hann samdi þessi kórlög við texta eftir Shakespeare. Songs and sonnets. Ótrúlega flott tónlist. Þessi snillingur fæddist blindur en það hindraði ekki tónlis
tarferil hans. Hann lest í febrúar á þessu ári,
Fyrsta Mánudagsmenning vetrarins á mánudagskvöld. Gissur Páll tenór og Árni Heiðar píanisti leiða saman hesta sína. Spennandi dagskrá og ég hlakka mikið til að hlýða á þá höfðingja. Íslensk tónlist í öndvegi. Þigg allt sem íslenskt er, með þökkum.
George Shearing og frú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.8.2011 | 08:33
Leikhús draumanna
Er búinn að kaupa miða á leik í Manchester. Það hefur lengi verið draumur að fara þangað. Við Teitur og Hafþór ætlum að skella okkur. Kíkja í leikhús draumanna. Miðað við það sem ég sá í gærkvöldi þá held ég að þetta geti orðið frábær leikhúsferð. Kallinn í brúnni virðist geta "skapað" leikmenn í þetta og það er frábært að sjá þessa ungu menn hjá liðinu. Svo skiptir hann þremur inn og liðið hikstar ekki. Svo eru menn eins og Berbi og Carrick bara ekki notaðir og Owen er bara í hesthúsinu.
Já, það stefnir í afbragðsvetur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2011 | 08:43
Hraðlestin hefur hikstað
en hefur samt náð sínum markmiðum. Skagamenn hafa farið á kostum í sumar. Eru komnir upp í efstu deild. Fyrir leik föstudagsins höfðu þeir unnið alla leiki nema einn og gátu með sigri tryggt sæti sitt meðal þeirra bestu. Ég hef séð þrjá leiki með þeim. Fyrsti leikurinn var á móti Víkingi frá Ólafsvík. Það var ekki góður leikur og þeir gerðu jafntefli. Leikur no. 2 var á föstudag á móti BÍ/Bolungarvík. Hann var ekki góður. Þeir töpuðu. Þökk sé Dýrfinnu Torfa sem hvatti sína menn að vestan af krafti, útbúin öflugu gjallarhorni. Skagfirðingurinn fékk reyndar víti en sá sem tók það náði ekki að koma knettinum fram hjá markverðinum. Sá svo leikinn í gær á móti ÍR. Jafntefli og það dugði. Skagfirðingurinn fékk reyndar víti en Hjörtur náði ekki að koma boltanum fram hjá markverðinum. Frábært hjá liðinu og verður gaman að sjá Skagamenn meðal þeirra bestu á næsta ári. Teitur í hóp í gær og það verður gaman að fylgjast með framgöngu ungu strákana á næstu misserum. Hef samt ekki enn séð liðið sigra í sumar. En það kemur að því.
Spurning um að leyfa Skagfirðingnum að taka þessi víti..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2011 | 08:26
Hólatónleikar
Í maí 1998 hélt ég orgeltónleika í Hóladómkirkju. Ástæðan fyrir þeim var sú, að ég hafði tekið stigspróf tveimur vikum áður og var ósáttur með spilamennskuna þar. Einkunin var reyndar ekki slæm en ég var ekki sáttur. Ákvað að spila efnið aftur og Hólar urðu fyrir valinu. Bauð kórnum í sveitinni minni og öðrum vinum og vandamönnum. Varð þetta hið skemmtilegasta kvöld og ég nokkuð sáttur.
Sunnudaginn 7. ágúst n.k. held ég tónleika í Hóladómkirkju. Tónleikarnir eru liður í sumartónleikaröð kirkjunnar. Þá eru liðin 13 ár síðan ég spilaði þessa fyrstu"opinberu" tónleika mína á Hólum.
Síðan hefur farið lítið fyrir opinberum tónleikum hjá mér á þetta merkilega hljóðfæri sem orgelið er. Það er því kominn tími á að halda aftur heim að Hólum.
Að velja efni á svona tónleika er mjög vandasamt. Og ég er alls ekki vanur að standa í því. Ég hef mikla unun af því að spila og það er fátt sem veitir mér meiri "sálarró". Ekki er ég samt mjög "upprifinn" þegar ég er staddur á orgeltónleikum hjá öðrum. Iðulega sofna ég og það þykir mörgum merkilegt því þetta hljóðfæri er ekki það hljóðlátasta þegar vel er þanið og oftast er það raunin. En virkar svæfandi á mig :) Sum stykki eru líka svo löng að maður sér ekki fyrir endann á þeim. Þvílíkir möguleikar sem eru í boði og það er það sem gerir þetta hljóðfæri svo dásamlegt. Ég fer þá leið að spila mörg styttri stykki. Þá getur fólk séð fyrir endann..
Ætlunin er síðan að njóta þess, það sem eftir lifir dagsins, sem þessi sögufrægi og fallegi staður hefur upp á að bjóða. Það er alltaf gaman að koma heim að Hólum.
Tónleikarnir hefjast kl. 14 og munu vara í c.a. 45. mín. Aðgangseyrir er enginn.
Ps. Veðurspá tekin af norska vefnum yr.no fyrir sunnudaginn.
Søndag, 07.08.2011
| kl 1218 | ![]() | 14° | 0 mm | Flau vind, 1 m/s fra nord-nordvest |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2011 | 16:19
Við vatnabrúna..
var ég staddur eitt fallegt sumarkvöld í byrjun júlí. Héraðsvötnin voru kyrrlát og hljóð. Við veiddum lax í net og það má segja að hann hafi verið nánast upp við land. Það var fallegt að horfa út fjörðinn. Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2011 | 09:27
Sumardagar
Þetta sumar líður hraðar en en ég átti von á. Það kom frekar seint en vonandi fáum við góðan viðauka. Við erum búin að fara víða í sumar. Það er kosturinn við þetta land okkar. Stuttar vegalengdir. Kórferð í byrjun maí í Hólminn þar sem síðustu orkudropar kórstjórans voru að klárast. Skemmtileg ferð og gaman að koma í Stykkishólm. Sumarbústaðaferð að Ökrum í Borgarfirði. Sól en frekar vindasamt og margir fallegir staðir heimsóttir. Dagsferðir á Þingvelli og í Sólheima í Grímsnesi. Er reyndar búinn að fara tvær ferðir í Sólheima og þetta er yndislegur staður að sækja. Svo var það heimsókn í Ólafsfjörð til svila míns bæjarstjóra og mágkonu. Þar er nú ekki í kot vísað. Fallegir staðir, Ólafsfjörður og Siglufjörður. Og það var magnað að koma inn í Héðinsfjörðinn. Siglufjörður er að verða glæsilegur bær og mér fannst ég vera staddur í útlöndum um stund þegar við vorum stödd við höfnina þar. Þarna er allt að gerast.
Svo var það Skagafjörðurinn. Ég þarf ekkert að fjölyrða um það hversu mikil ítök hann hefur í mér. Ég neita því ekki að þar myndi ég stundum vilja að tíminn stæði í stað. Tíminn leið við netaveiði og aðrar kærkomnar annir. Þar fengum við góða daga og endaði annasöm vika með Listaflóðinu. Sem var velheppnað þrátt fyrir í raun ekki mikin undirbúning. Hann gerjaðist í höfðinu á okkur jafnóðum. Það lögðust líka allir á eitt til að gera þetta sem best úr garði. Flottur dagur og ég dáist að heimilisfólkinu á Syðstu-Grund fyrir að halda svona vel utan um þetta. Við fengum góða hjálp frá góðum vinum og þessi dagur var góður.
Það var líka gott að koma heim á Akranes og hefja aftur störfin sem maður þarf stundum nauðsynlega að hvila sig á. Framundan eru tónleikar sem ég ætla að vera með í Hóladómkirkju og ég hlakka mikið til að koma heim að Hólum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2011 | 10:00
Listaflóð á vígaslóð
Viðburðalaugardagur á Syðstu-Grund
Listaflóð á vígaslóð
“sunnan við garðinn hennar mömmu”
Laugardaginn 16. júlí verður verður haldinn menningardagur á Syðstu-Grund í Blönduhlíð. Þar er kominn vísir að ferðaþjónustu enda er staðsetning jarðarinnar afskaplega vel í sveit sett. Í landi Syðstu-Grundar var Haugsnesbardagi háður árið 1246 en sá bardagi var ein af stórorrustum Sturlungaaldar og mannskæðasti bardagi sem háður hefur verið á Íslandi. Sú hugmynd kom upp í fyrrasumar að gaman væri að halda litla sumarhátíð á Syðstu-Grund og setja þar með mark sitt á þá miklu menningarflóru sem Skagafjörður hefur upp á bjóða. Í framtíðinni er svo hugmyndin að þessi sumarhátíð geti undið upp á sig og fyrirhuguð er menningarhelgi á næsta ári þar sem settar verða upp miðaldabúðir og heimafólk mun halda uppi menningardagskrá.
“Réttur verður settur kl. 13” og mun dagskráin verða opin fram eftir degi. Lítill garðmarkaður þar sem handverksfólk og annað listafólk sýnir og kynnir varning sinn og hægt er að gera góð kaup ef fólk vill. Lilla á Grund er búinn að baka mikið góðgæti og Sæmundur mun standa í dyrum og bjóða til samsætis við eldhúsborðið. Sunnan við garðinn stendur Litla-Grund og þar gefst fólki kostur á að líta vel samsett smáhýsi og kynnast nánar tilhögun þess og smíði. Félagar úr Víkingafélaginu Hringhorna á Akranesi mæta til leiks og sýna leiki fornmanna og bjóða gestum í leik, börnum sem fullorðnum. Sigurður Hansen í Kringlumýri býður göngufráum í leiðsögn á Haugsnesgrundir.
Róðugrund er örnefni á grundunum vestan Haugsness, í landi Syðstu-Grundar í Blönduhlíð. Þar var reistur róðukross til minningar um Brand og er talið að krossinn hafi staðið fram undir siðaskipti. Tók staðurinn nafn af krossinum. Sumarið 2009 var reistur annar róðukross á Róðugrund, til að minnast atburðanna þegar Ásbirningar hurfu af sjónarsviðinu sem ein mesta valdaætt landsins.
Að endingu verða svo tjaldtónleikarnir “Sunnan við garðinn hennar mömmu” þar sem fram koma eftirtaldir: Sæþór Már, Thor Gillon, Johnson&Johnson, Jón Þorsteinn Reynisson harmoníkusnillingur og Tindatríóið ásamt Arnari á Grund. Tindtríóið skipa feðgarnir Atli Guðlaugsson, Guðlaugur Atlason og Bjarni Atlason.
Kaffiveitingar Lillu eru á kr. 500 (ath. ekki er posi á staðnum)
Aðgangseyrir á tónleikana er ekki bundinn við neina upphæð en fólki er velkomið að láta frjáls framlög af hendi rakna til styrktar þessum menningardegi.
Verið velkomin í Syðstu-Grund á laugardaginn!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2011 | 21:11
Þingvallaferð
var farin í gær. Þó skömm sé frá að segja, þá hef ég ekki komið þangað áður til að skoða mig um þó ég hafi verið þarna í mýflugumynd áður. Þetta er virkilega fallegur staður. Með í för voru Þórgunnur, Kolbeinn og Fríða tengdamamma.
Það var að sjálfsögðu staldrað við Drekkingarhyl. Þar var sakakonum drekkt fyrr á öldum. Fyrsta konan sem hlaut þessi örlög var Þórdís Halldórsdóttir frá Sólheimum í Skagafirði. Hún var dæmd sek árið 1590 um ljúgvitni þar sem hún hefði svarið sig hreina mey er hún væri í raun ófrísk. Síðan hefði hún neitað að segja til föðurins en að lokum borið að mágur hennar væri faðirinn. Dómararnir sögðust ekki finna nein merki þess að hann hefði komist yfir hana með göldrum og dæmdu hana til drekkingar!
Kolbeinn Tumi var alveg að fíla Almannagjá og skemmtilegast fannst honum að ganga þar sem hann mátti ekki ganga..
Það er frekar einmannalegt hjá þeim Einari Ben. og Jónasi í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum en hugsanlega eiga einhverjir merkis einstakingar eftir að hvíla þar með þeim síðar.
Þetta vel snyrta grenitré er í bakgarðinum á ráðherrabústaðnum. Indælis dagur í alla staði og skemmtilegast eru ferðirnar þegar þær eru ekki planaðar með miklum fyrirvara!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



Flau vind, 1 m/s fra nord-nordvest

eythoringi
organisti
svavaralfred
hemba
eythora
bjarneyrun
ktomm









